Gardar Þ

Garðar Þorsteinsson

11.05.2007 00:22:53 / gardar

Tigi

Fyrst ég hef smá að segja frá núna þá skelli eg einni færslu inn :P

en um daginn þá var eg fengin og fleirri model til þess að vera í stórri hártísku sýningu fyrir Tigi sem var alveg örugglega stærsta catwalk sýning sem ég hef verið í, sýningin var 2 og hálfur tími og það var æft strangt allan daginn og þá sérstaklega ég og minn hópur þar sem hópunum var skipt eftir því hvort þau sýndu catwalk, bed head ofl.. ég syndi fyrir Bed head og var þetta bara ótrúlega flott sýning og hún heppnaðist mjög vel. Kannski ég fái nokkrar myndir frá henni til að sýna seinna :P

En já maður býður núna bara eftir Orlofinu spenntur ;) eins og margir aðrir býst ég við, þá getur maður loksins klárað slatta af þessum afborgunum sem maður hefur.

En já svo var Eurovisjon í kvöld, var reyndar að vinna svo ég sá keppnina ekki en sá samt Eika koma fram beint í sjonvarps fréttum á stöð 2 og kallaði austur-tjöldin Mafíu.. sem er í sjalfu ser rett í þessari keppni, spurning um að fara eftir þvi sem hann segir og berjast á móti því og kjósa bara norður löndin þótt lögin þeirra seu ekki neitt frábær.

En já það er margt á döfinni samt, Reunion hjá mér 19 mai og svo er árshátiðin í Vm helgina eftir það 26 mai svo ætli maður verði ekki frekar valtur þær vikur ;)

Er annars bara búin að vera frekar rólegur upp á síðkastið með henni Aldísi minni, vinnum eins og vitleysingar svo það er varla orka til neins annars :( en maður reynir að bæta það upp núna bráðum. þá kannski fær fólk að sjá meira af mér.. þ.e.a.s ef það vill ;)

En er farin að sofa núna þar sem eg er drullu þreyttur og langur dagur a morgun.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:38:47 / gardar

Geggjað út í Dk

já eins og fyrirsögnin segjir þá var hreint og beint geðveikt út í Danmörku !

Var í alveg frábærri íbuð sem eigendurnir eiga á Strikinu sem jafnast á við hvaða hótelsvítu sem er eða bara betri ;) ætla næu ekkert að fara ofan i detailin hvað maður gerði úti, en það var meðal annars, lesið bók, horft á nokkrar myndir, verið í sólbaði á strikinu og verslað, sma djammað, út ða borða og ekki má gleyma ógleymanlegri stund með Leru í Tívolínu þar sem við létum eins og apakettir hehe

svo má maður ekki skreppa í örskammastund af landinu nema það verði stórbruni bara ha ! hvað á það að þýða núna verður enn troðnara á hinum skemmtistöðunum hehe

en ja nú er sú ferð búin og margt annað komið á döfina eins og t.d. reunion 19 Mai sem maður verður nu að skella ser á og helgina eftir það er svo árshátiðin hjá Vm sem er hlutur sem eg er buin að biða eftir alveg um leið og su seinustu lauk.

 

en ja svo eru þessar blessaðar kosningar á næsta leiti ha, spurning hvað maður eigi að kjósa en ég er 100% viss um að eg mun aldrei a minni ævi kjosa samfylkinguna eða vinstri græna þar sem eg er mjög hægri sinnaður og hef engan áhuga á að sja hagvöxtin a landinu hverfa mig langar lika að fá létt vín í matvörubúðir sem myndi aldrei gerast með þessa flokka í forystu, ef einhvað væri þá myndu þeir banna afengi, bloð i teiknymdinum eða bara öllum myndum og alla tölvuleiki.. eða þá bara alla leiki því þeir geta skaða mann. En já þeir sem vilja fá að náttúran njoti sin en ekki þeir... þau meiga kjosa þessa flokka.. en ja ég gæti tjað mig um þetta i langan tima en ætla ekki að gera hér ;) bið bara alla vinstri menn að drulla ser af siðunni ! nei eg vil ekki vera of leiðinlegur :P

en eg er farin.. margt annað að gera. t.d. taka til hehe

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 21:09:24 / gardar

5 Apríl 2007

Málið er það að ég var búin að skrifa frábært blogg um daginn en ég náði að fokka þessu upp i endanum og allt hvarf, svo eg fór í smá fílu og vildi ekki skrifa nýtt blogg en jæja ætli maður verið nú ekki að láta fólk vita að maður sé á lífi ha ;P

 

Ég vinn og vinn náttúrulega eins og crazy man eins og flestir vita svo það er ekkert svaðalegt að frétta af mér,  ég er reyndar að fara til Kaupmannahafnar 16.Apríl að vinna, nokkuru daga vinnu ferð til að versla sumarvörurnar en svo ætla ég og Lera að taka smá frí og heimsækja Strikið fræga ;)

Fór reyndar í ótrúlega gott teiti hjá henni Leru seinasta Laugardag og þakka henni fyrir gott boð, vorum svo á Pravda mest allt kvöldið en svo endaði maður á solon seinni partinn eins og vanalega :P

En núna er komið smá páskafrí sem er samt ekkert frí beint hja mér, 3 daga frí sem maður fær sem maður hefur ekkert að gera í því hún Aldís er að vestan, Vona hún skemmti sér konunglega þar þó :D 

 Ætli maður skelli sér þá ekki bara í bío á Turtles ?  er buin að leika mer við þá hugmynd að fara á myndina í svaka skjaldbökubúning hehe, ég var biggest fan þegar ég var lítill svo spurning.

en já ég ætla finna mér einhvað til að gera. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 22:03:56 / gardar

Allt að gerast

Já það er svo sannarlega margt að gerast þessa dagana,
ég er alveg að vera búin að ljúka við herbergið, fataskápurinn loksins tilbuin, buin að skipta um ljós og meira segja bæta við dimmer sem er mjög næs.
sjónvarpið og græjurnar komnar og tilbúnar en aðeins eftir að fínpússa það samt.

bætti við nokkrum myndum af því hérna í myndaralbúmið mitt :P

heyrði eg var svo "neyddur" til að djamma seinustu helgi, Erik fekk mig til þess að taka þátt í smá 80' / diskó kvöldi á Rex, litil tískusýning sem sló alveg í gegn ! bara fyndið. kvöldið var alveg geðveikt vægast sagt. skellti mér svo aftur út á lífið þessa helgina sem leið. Tók smá salsa dans með Önnu karen og fleirrum. rosalega margir vinir í bænum sem gerði nóttina mjög skemtilega.

en núna er maður aftur komin í pásu þá, alveg nó að drekka tvisvar.

svo er kallinn kannski að fara út i Apríl ;) en ég fæ að vita meir af þvi fljótlega.

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 01:59:16 / gardar

12 Feb

úffff...  núna er maður sveittur og sætur ha !

fyrir tvem dögum eftir vinnu skelltum við Tanja okkur í Ikea til að skoða svona hitt og þetta,

mig langaði að sjá hvað fataskápurinn sem mig langaði í kostaði.

allt í gúddí með það nema að ég skellti mér bara á hann þarna og var að klára að setja hann upp núna og ég get sko sagt ykkur það að það er ekkert létt !  tók nokkra tíma og mikil erfiði.

hendurnar kvarta mest þar sem hægri hendin er rauðari en epli sem stendur, mun örugglega fá nokkrar blöðrur.  En ég er ánægður með verkið.  Skápurinn kemur mjög vel ut en á reyndar eftir að bæta einni einingu við hann í næstu viku.

 Er annars bara búin að gera fátt, skellti mér reyndar á hverfis í stutta stund á fimmtudeginum þar sem flestir í vinnuni voru. Alveg tómur staðurinn fyrir utan okkur og blind fullan trúbador reyndar voru margir hjá okkur lika alveg komin vel í glas nema náttúrulega ég ;) þar sem ég drekk ekki lengur eða allavegana ekki í bili.

Svo er maður bara buin að vera vinna, sofa  og setja saman fataskáp :P  mjög skemtileg helgi.

Skelli einni mynd af herberginu þegar þetta er allt klárt.

en eg hef ekkert meir að segja svo ég kveð að sinni og skila afmælis kveðjum til hennar Önnu sem var að verða 19ára :P 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 01:50:29 / gardar

7 Feb.

ákvað nú að skella inn einni færslu..  ef það eru stafsetningar villur þá er það eflaust vegna þess að ég sé allt tvöfalt. er búin að vera undarlega veikur þessa dagana, það er eins og það hafi verið klippt á jafnvægisskynið mitt en annars er ég bara fínn.

Hvað er annars að frétta af mér...   úff margt og lítið.
Er sem stendur komin í fullt starf í jack and jones sem verslunarstjóri sem er mjög skemtilegt, alltaf gaman að takast á við einhvað nýtt og sérstaklega ef það er krefjandi eins og starf mitt er. Mjög ánægður með starf mitt og ekki sakar að hafa ótrúlega skemtilegt og gott fólk sem vinnur með mer sem gerir daginn alltaf skemtilegan.

Er annars líka á fullu að innrétta herbergið alveg upp á nýtt. Er að selja ALLT gamla draslið, er búin að kaupa nýtt rúm, er enn að venjast því að vera með stórt rúm núna þar sem ég get velt mér í nokkra hringi áður en ég dett fram úr.
Svo er geðveikur fataskápur að koma næstu viku og það er líka verið að mála herbergið þá. svo koma svona einn og einn hlutur inn i herbergið með tímanum.

ég veit ekki hvort fólk trúi því en ég er komin í smá áfengis bindindi sem byrjaði núna í febrúar, ætla sjá hve mikin pening ég spari ef eg fer ekkert á djammið í þessum mánuði þar sem buddan mín fór ienhvað að kvarta hvað eg eyddi miklu í janúar :P
það gengur alveg nokkuð vel bara, spurning hvort líkaminn sé ekki að fíla það og geri mig bara náttúrulega fullan í staðinn.. kannski ég se veikur vegna þess ;)

svo er maður farin að pæla í því hvert maður eigi að fara í sumar ha.... ég veit ekki mitt rjúkandi ráð..    svo margir staðir sem koma til greina !!   svo vantar mig einhverja snilldar ferðafélaga svo endilega láta mig vita ef einhverjum langar út í sumar ;)
jæja pæla fara upp í rúm aftur áður mér verður flökurt, finnst eins og ég sé á skipi í óveðri . ruggandi upp og niður.  helvíti skemtilegt það ha ! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 00:09:02 / gardar

5.Dec

Ég hef verið allt of upptekin seinustu vikur til þess að geta bloggað en
ég ætla mér nú að rita smá núna þar sem ég hef fengið
nóg að lesa í félagsfræði í bili.

Er bara í þremur prófum og vika á milli þeirra. Búin með frönskuna og hag 113 eftir viku.
Gekk bara helvíti vel með frönsku prófið. Langt síðan ég gekk út úr prófi með stórt bros á vör.
Hef verið að vinna annars alla daga, Hef tekið við verslunarstjóra stöðu í Jack and jones og þá fær maður lítil frí tíma. Það eina sem ég gerði um alla helgina var að vinna og sofna svo um leið og eg kom heim... svo mæta aftur til vinnu næsta dag..  Býst við að allur Desember mánuðirinn verði nokkurn vegin þannig.
Svo er maður að skella sér til Noregs 29.des og verð þar yfir áramótin.
Fer með Agnesi og fjölskyldu hennar, Gistum í fjallakofa við skíðasvæði. Þetta verður hressandi tilbreyting frá Íslandi.  Hlakka til að prófa að vera léttur á snjóbretti :P

Svo hef ég verið að skella mér oft á fimmtudögum á Solon. Alveg mögnuð stemming þar alltaf, hef skemmt mér helvíti vel þar með Herdísi og Svenna, svo hitti maður margt skemmtilegt fólk eins og t.d. Önnu Karen ofl.

Ætli ég skelli mér ekki í að lesa aðeins meira svo ég geti nú farið að sofa ;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 00:55:04 / gardar

Basshunter

Þetta var magnað kvöld, Ætla þó að byrja á því að óska móður minni til hamingju með afmælið sitt sem var í gær og brúðkaupsafmæli foreldra minna sem var í dag, svo má maður ekki gleyma afmælinu hans pabba sem verður þann 19 Nóv. Allt að gerast..

En já..  var að koma af sýningu og tónleikum, Basshunter á Broadway. Það var tískusýning fyrir tonleikana sem við nokkur vorum í, sýndum föt fyrir nokkur fatamerki.
Held ég hafi aldrei heyrt í jafn mörkum öskrum af stelpum áður á sýningu, en við hverju var að búast ? allt einhverjar smá stelpur.  Agnes hefur ekkert að óttast þær ;)

Basshunter var nokkuð hress þarna bakviðs með allar módel stelpurnar að knúsa hann haha, lítið annað hægt að gera en að taka í hendina á þeim pilti sem nær að láta lag um botta og tölvuleika vera vinsæla..  :P

en já þarf að reyna taka þetta helvitis svarta malnginu sem er eg með um augun á mer,  það var svona dark,punk,emo þema einhvað svo maður átti að vera einhvað dark um augun. bara vesen að ná þessu úr sér ! held það yrði tekið eftir þvi ef eg kæmi í skolan næsta dag með einhvað sem virtist vera augnskuggi um augun.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 21:24:56 / gardar

6. Nóv 2006

úff, var að klára taka til í herberginu mínu á 15min. Var að flýta mér því ég er að fara á Borat með honum Ævari. en á nokkrar afgangs mínutur núna og ákvað að nota það til að blogga einhvað ;)

Helgin var nokkuð fín bara, er búin að vera vinna allt of mikið samt. Þegar búin að vinna 8 daga á þessu tímabili sem er jafn mikið og fastastarfsmaður vinnur.
en já fór á Eplaballið á Fimmtudaginn með Katrínu,Ævari og Agnesi. það var.... ágætt hehe. maður spurði sig allan tíman hvað maður væri eiginlega að gera þarna, var mest bara flipp og til þess að brjóta upp vikuna fór svo á sma vinnudjamm á players á föstudeginum, vorum með smá pool keppni og var það bara nokkuð gaman. Við Elli fórum svo til Stebba og fórum svo í bæinn. Ég reyndar beilaði svo á bænum og ákvað að fara frekar heim þar sem ég átti að fara vinna næsta dag, sé nú alls ekki eftir því þar sem vinnudaginn var bara rugl sem eg hefði ekki getað þunnur hehe.
Laugard og Sunnud voru svo frekar rólegir. Hef nú ekki tima til að blogga meir en kannski maður skelli einhverju sniðugu inn bráðum eða einhverjum sögum sem eru að einhverju marki athyglisverðar annað en þessi blogg ;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 00:02:47 / gardar

Vetrafríið

Nú er vetrafríið á enda og mér finnst eins og jólin séu bara að fara láta gera vart við sig.
Ég er byrjaður að skoða próftöfluna mína í desember og komst að því að ég er í aðeins þremur prófum sem gleður mig alveg svakalega og aðeins eitt af þeim er einhvað sem ég þarf að leggja á mig extra fyrir sem þýðir að ég mun hafa mikin tima til þess að gera annað eins og t.d. að vinna.

Ég vann ótrulega mikið seinasta desember og ef eg hugsa til baka þá man ég eftir því hve mikill jóla-andi var fyrir fólkinu og hve skemtilegur sá tími hafi verið í raun verið svo mig getur ekki annað en hlakkað til núna og er strax byrjaður að festa á mig allar vaktir sem ég get þar sem ég er nú algjör vinnualki.
Er ég búin að kveikja á jóla-tilfiningunum hjá einhverjum núna ? ;)

Veit þó ekki hve jólalegt það er fyrir annað fólk að tala um vinnuna og að vinna mikið hehe en þar er peningurinn svo mig hlakkar mest til Janúars til að geta greitt niður öll lán og svona skemtilegt.  byrja á lokaönnini vonandi og fara klára þetta allt :P

ennn já ég var að tala um vetrafrí, vá þetta er ástæðan fyrir ða ég ætti ekki að skrifa blogg, ég enda á að skrifa 300bls ritgerð eða einhvað álika.. en já.   fínt vetra frí.. vann alla dagana en fór í kveðju party til hennar svanhildar sem var alveg frábært.. gott teiti þar á ferð eins og alltaf, margt sem kom mér á óvart þar ;)  var svo vel þunnur á sunnudeginum að mestu i vinnuni en svo svo restina af deginum..  það er sko vel notaður dagur.. sofa og vinna :P
en nú ætla ég að ljúka þessu bulli á kveðjum til bróður míns í danmörku sem lætur aldrei heyra í sér þ´vi hann gerir örugglega ekkert annað en að drekka sig fullan á prikinu ;)  nei nei segi svona.
Ble


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 02:24:02 / gardar

Gott líf

Já lífið hefur verið gott að undanförnu.. eða svona mest allt.

reyndar svolítið seint en ég vil óska Agnesi Elskuni minni til hamingju með að vera orðin loksins 18ára og héldum við upp á það saman helgina 14 og 15 því við vorum einnig búin að vera saman í hálft ár þá.

Var ágætt djamm á okkur á laugardeginum, byrjaði það heima hjá henni þar sem aðalvina hópurinn var saman komin og sötrað á nokkrum drykkjum, eftir það fórum við á Broadway sem var bara nokkuð gaman en skemtilegast var að geta farið svo á Hotel Nordica og látið stjana við sig.

Ótrúlega var gott að sofa þarna... var bara sofið út og svo fór hún Agnes í nudd og þegar hún kom aftur fekk hún sína afmælis gjöf sem ég vona að hún hafi verið ánægð með. :) 

Fórum svo á Vox um kvöldip og fengum okkur  góðar forrét og pöntuðum bæði nautasteikina, aðalega samt því það var það eina sem ég skildi á þessum matseðli haha ;) kannski líka því það er eitt af minum uppáhalds máltíðum.

Fengum svo dýrindis eftirrétt og héldum svo áfram að lifa í velystum þarna á hótelinu en þurftum svo að kveðja það með tárum því foreldrar mínir tóku upp á því að fara til Austurríkis svo eg þurfti að gefa litlu bræðum að borða og svona fylgjast með þeim.. þeir eru nu orðnir 13ára svo það er aldrei að vita nema þeir haldi bara partý eða einhvað.

Reyndar fekk ég alveg glataðar fréttir í dag !  hún Svanhildur mín er að hætta í Vero Moda og ætlaði ég var ég vægast sagt í sjokki og alveg óvinnuhæfur restina af kvöldinu ! en óska ég hennar þó góðs gengis í nýju vinnuni sinni og vona allt gangi í hagin fyrir hana.

en núna er ég buin að skrifa allt allt allt of mikið því ég var að ljúka við ritgerð fyrir sögu svo puttarnir mínir eru einhvað þreyttir. 

Góða nótt ;)     Hættið svo að pæla í þessum orða og stafsetningar villum því ég fer aldrei yfir það sem ég skrifa og skrifa þetta allt í einu teig.. svo FUXX OFF


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 13:59:49 / gardar

10 / 10 2006

Núna píni ég mig bara til að skrifa.. ekkert meira kjaftæði ! ;)

Ég vil byrja á því að óska honum Einari afa minunm til hamingju með áttræðis afmælið sitt !  hann er enn þá hress og kátur og helviti vel á sig komin miða við aldur svo ég er stoltur af honum.

Hann fekk líka þessa mögnuðu veislu á laugardaginn, setti myndir af því á myndasíðuna mína.

Fór annars á Harsh Times og Beerfest um helgina og áður. Mæli sterklega með Harsh times ef þig langar að sjá virkilega magnaða og góða mynd en ef þig langar að sprella smá þá bendi eg á Beerfest sem hefur upp á að bjóða einfaldan en góðan húmor (Þynku mynd)

Vill Einnig Óska honum Svenna til hamingju með afmælið ! kallinn orðin 21ára núna. maður fer óðfluga að nálgast þrítugsaldurinn ha. !

Næsta helgi verður mögnuð ! Agnes á afmæli og við eigum hálfs árs mánaða afmæli ! Þa verður bara gist á Nordica og tekið nuddið og spaið á þetta.. lifa svona eins og kóngar eina helgi ;) 

En já eg er bara í stuttu breiki og á að verafara í leikfimi að koma mér í form !

Verið blessuð og lifið heil


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 23:22:58 / gardar

13. September

Kannski komið að því að maður láti einhvað heyra í sér svo fólk haldi að jörðinn hafi ekki gleypt mann :P

veit samt ekki beint um hvað ég ætti að skrifa um... hvort það sé um daginn og lífið eða hvort maður ætti að reyna að koma með einhvað heimspekilegt... 

En nýjustu fréttirnar eru að ég er að fá mér nýjan bíl núna í næstu viku vonandi..  verður frekar stórt stökk upp úr Accordinum minum sem mér þykir svo vænt um ;)

eitt stykki mynd af kagganum.. hann er bara rauður reyndar en ekki grár

Annars er ég að sökkva mér í vinnu og skólinn tekur líka alveg ágætan tíma af deginum..  þannig að minn tími er að skornum skammti.

Hvernig eru allir annars að fíla Rock Supernova ? er það alveg að tröllríða þjóðinni ?  Magni er alveg ágætis gæji, hafði ekki mikið metið hann áður þar sem mér fannst hann aldrei syngja neitt spes vel en núna hefur hann virkilega sýnt hvað í sér býr og maður getur nú varla annað en fyllst af stolti að hafa hann þarna..  Loka þátturinn er einmitt í fullu gangi núna,  er nokkuð viss um að hann muni aldrei vinna þar sem hann er bara ekki beint alveg týpan i akkurat þetta band.. hann er ekki þessi bandaríska rokkstjarna.. hann er of jarðbundin þó að það sé afar góður kostur þá virkar það ekki þarna í þeim heimi því miður. en hvað um það eins og það skipti einhverju máli.

Var annars bara að koma úr Vinnu fundi þar sem við aðalega borðuðum pizzur..  er enn illt i maganum og fór svo í pool með Hjálmari bróður..  endaði 2-3 með hans sigri.. tss hann var bara heppinn. Ég var of upptekinn við að tala um bílinn sem ég er að reyna versla mér ;)

en ætla nú ekki að gera þetta lengra..  finnst þetta alveg vera komið nóg !


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 15:30:17 / gardar

AFMÆLI !!

AFMÆLI !!!

Í tilefni þess að ég er að verða tvítugur á laugard. 26 ágúst

þá býð ég til afmælis partý á Hverfisbarnum.

Vona að allir komi með góða skapið og ekki verra en að hafa einn lítin pakka handa mer ;)

mæting upp úr 9 og því fyrr sem þú kemur því meira áfengi færð þú, fyrstir koma fyrstir fá.

Hlakka til að sjá ykkur

með kveðjum Garðar


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 04:07:56 / gardar

19/08/06

Jæja þá fer sumarið brátt að enda...  Skólinn að byrja.. næ í stundatöfluna á mánudaginn..  ætli maður fari ekki að klára þetta núna fljótt.

En það er annað mikið merkilegra á döfinni !!  Afmælið mitt !   Kallin bara að verða tvítugur.  bara hel gamall.   Planið er að halda upp á það á afmælidseginum minum 26.ágúst.  þ.e.a.s á Laugardeginum helgina eftir menningarnótt.  vona fólkið djammi ekki of mikið á menningarnótt því eg ætlast til þess að þið verðið í góðu stuði.  Verður eflaust áfengi frítt en eins og gengur og gerist þá er það bara fyrstur kemur fyrstur fær því það er alltaf fljótt að fara sama hve mikið maður kaupir.

en já þegar ég hef alveg fengið það á hreint hvar ég held þða þá mun eg fara bjóða í það og vona allir taki frá 26.ágúst !

en já annars fátt að gerast held ég bara :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8